fimmtudagur, 15. maí 2008

Fyrstu dagarnir án mömmu


Óskaplega finnst mér fyrirsögnin hérna sorgleg.... ég er samt líklega ein um það því hér heima gekk allt bara ágætlega. Ég hefði e.t.v. frekar átt að skrifa "fyrstu dagarnir án Iðunnar" því missir móðurinnar virðist meiri en barnsins. En sem sagt, ég fór í vinnu bæði í gær og í dag, ca. 6 tíma í hvort skipti og allt gekk vonum framar hjá þeim feðginunum. Iðunn fékkst til að drekka úr pela, reyndar takmarkað magn (en meira í dag en í gær svo það stendur til bóta), og borðaði líka smá graut, fékk svo bara ofsalega góðan sopa þegar mamma koma heim. Þau feðginin dunduðu sér saman, fóru í göngutúra og léku sér á teppi o.s.frv. Allt sem sagt bara í lukkunnar velstandi hér í Victoria Road. Ekki spillti fyrir að þegar ég kom heim úr vinnu báða dagana var allt tiltekið og uppvaskað - hann Helgi er nú alveg yndislegur!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Amma faer tar i augun af ad lesa thetta, vid hofum ekki komist i tolvu i naestum viku og erum komnar med frahvarfseinkenni. Hofum verid a eyjunni Folegandros naestum timann en erum a leid til Athenu nuna.

Amma og Dilja