miðvikudagur, 28. maí 2008

Singing in the rain...

Óskaplega er veðrið orðið leiðinlegt - suddarigning í allan dag og svo þoka núna í kvöld. Það skipti mig svo sem ekki svo miklu máli þar sem ég er enn föst yfir prófunum, en Iðunn litla varð að grafa fram Janus gallann áður en þau feðginin fóru í bleyjuinnkaup fyrr í dag. Hún er samt alltaf jafn sæl, sama hvernig viðrar.
Annars gerðist í raun ekkert fréttnæmt, annað en að söngglaði píparinn kom og gerði við sírennslið í klósettinu sem Nonni frændi réði ekki við og var að gera húsfreyju geðveika - það er nóg að eiga erfitt með að sofna eftir næturgjafir, enn verra ef maður liggur svo endalaust vakandi að hlusta á rennandi vatns hljóð - það hafa verið ófár klósettferðir hér að næturlagi að undanförnu!......we are not amused!
Farin í rúmið að njóta kyrrðarinnar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ og takk fyrir kveðjuna á úlfasíðunni :)
Nú er ég búin að skoða allar myndirnar inni á myndasíðu Iðunnar, vissi ekki af þessum síðum fyrr en ég sá linkinn í kommentinu frá ykkur.
Mikið ofsalega er hún falleg og fín og yndisleg!! :) Iðunn þ.e., ekki síðan. Eða síðan er líka mjög fín sko...*hjálp*! Búin að koma mér í smá klandur hérna greinilega :/

Var voða leið að frétta, í veislunni hennar Diljár, að þið væruð farin af landi brott og skammast mín ofan í tær fyrir að hafa enn ekki komið og kíkt á ykkur :(
Hvenær eruð þið væntanleg til baka?

Bestu kveðjur héðan frá okkur mæðginum á Mímisveginum. Hlakka til að fylgjast með ykkur á síðunni :)

Knús,
Gríma og Úlfur Kári