Eftir ansi langt ferðalag erum við komin til Barnard Castle. Allt gekk vel en við erum öll svoldið lúin. Komum í hús um korter yfir tólf í nótt eftir 2 tíma flug og 3 tíma keyrslu, og Iðunn svaf sem betur fer af sér alla bílferðina því ekki var nægt pláss til að pabbinn gæti setið afturí með henni. Hér tóku kisurnar á móti okkur, og ekki er enn ljóst hvernig þeim mun semja við Iðunni, en henni líst að minnsta kosti ansi vel á þær.
Meiri skrif síðar
1 ummæli:
Hae Idunn og foreldrar, vid sitjum her a internetkaffihusi i Paros a leidinni til Naxos a morgunn. Solin skin en vid erum sma brenndar, tho ekki alvarlega.
Kossar og knus, amma og Dilja
Skrifa ummæli