Það eru ekki allir vinnustaðir eins. Hér í Bretlandi hefur t.d. verið mjög erfitt fyrir konur að fara að vinna eftir barneignir vegna skilningsleysis vinnuveitenda og rándýrra leikskóla (niðurgreiddi leikskólinn í Durham háskóla kostar t.d. 750 pund á mánuði og þarf samt að koma með nesti). Í gær hringdi deildarstjórinn minn í mig til að athuga hvort ég kæmi nú ekki örugglega aftur, og lagði mikla áherslu á að ég gæti bara haft mína hentisemi með viðveru eftir því sem passar inní brjóstagjöfina. Eins að láta hann vita um leið og mér fyndist álagið of mikið svo hann gæti hjálpað mér - bauðst meira að segja til að fara yfir einhver af prófunum mínum fyrir mig, eða borga öðrum fyrir að taka það að sér.....ekki amalegt boð það.
Allt í einu varð ég miklu jákvæðari.
1 ummæli:
Alltaf jafn gaman ad kikja a Idunni skemmta ser i utlondum. Amma faer verk i fangid ad sja hana svona saeta. Vid erum nuna a Santorini a leidinni til Folegandros a morgunn, mikil sol og frekar heitt. Gaman nuna!
Amma og Dilja
Skrifa ummæli