mánudagur, 26. maí 2008

Þriggja daga helgin


Við erum á því, eins og margir aðrir, að allar helgar ættu að vera þriggja daga helgar. Svo heppilega vill til að þennan fyrsta mánuð okkar í UK hafa verið tvær slíkar helgar. Þessa helgi var sem áður greindi frá svo kallað Barnard Castle Meet, og alls kyns húllumhæ því tengt. Í dag var heljarinnar skrúðganga í gegnum bæinn, og við fórum náttúrulega til að bera hana augum. Veðrið var gott en ansi mikið rok og gífurlegur mannfjöldi. Skrúðgangan samanstóð af a.m.k. 6 lúðra/klukkuspils/sekkjapípusveitum, ásamt þó nokkrum fjölda svokallaðra "floats" sem eru vagnar, yfirleitt dregnir af jeppum eða dráttarvélum, skreyttir eftir hinum ýmsu þemum. Alls kyns hópar, allt frá leikskólum til björgunarsveita höfðu útbúið svona float, og var gaman að sjá hversu mikið hafði verið lagt í undirbúninginn. Að skrúðgöngunni lokinni fórum við fyrst á Tívolí sem búið er að koma fyrir í bænum og enduðum svo í sólbaði í garðinum hennar Donnu. Yndislegur dagur, og bara 4 daga vinnuvika fram undan!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þegar ég fór til Bernard Castle í fyrra þá voru þarna nokkur hús á stangli. Nú virðist þetta orðin stórborg. Ég verð að koma aftur og skoða mannfjöldann.

Una sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Una sagði...

Skítt með mannfjöldann - komdu bara aftur til að hitta okkur!