Hér í County Durham er alltaf sama blíðan. Í dag fórum við til Masham, sem er lítið þorp í N. Yorkshire, sem státar af tveimur brugghúsum: Theakston´s og Black Sheep Brewery. Hið síðarnefnda er víst hugarfóstur yngsta meðlims Theakstons fjölskyldunnar, sem sagði skilið við fjölskyldufyrirtækið og tók að brugga sinn eiginn bjór undir nafninu svarti sauðurinn. Helgi Pétur er mjööög hrifinn af Masham, og er alltaf til í að styðja framtak svarta sauðarins því hann bruggar einstaklega góðan bjór. Í þetta sinn fórum við þó eiginlega til að láta yndislegu mennina í Wensleydale Garage kíkja á bílinn okkar, og tókst þeim að kippa honum í lag á klukkustund og fyrir einungis 45 pund svo við vorum sátt. Einnig skoðuðum við kirkjuna og kirkjugarðinn í þorpinu, og Iðunn fékk að láta grasið kítla tærnar - myndir að því er að finna í eplamyndunum sem linkað er hérna hægra megin. Þannig að nú er allt í fínasta lagi, bíllinn kominn í lag, veðurspáin góð og allt í lukkunnar velstandi
föstudagur, 9. maí 2008
Allt í stakasta lagi

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gott að bílavesenið er búið og eins að það hafi ekki kostað meira. Kostnaður í bílaviðgerðir finnst mér alltaf vera blóðpeningar.
Sætar myndirnar af Iðunni á táslunum í grasinu :)
Skrifa ummæli