
Meira að segja Pollýanna incarnate á erfitt með að sjá blessunina í rigningardögum og dagurinn í dag var slíkur. Við nýttum tækifærið og tókum lífinu með ró fram undir hádegi, en héldum svo til Darlington í vetrarundirbúning. Fólst hann í að kaupa inniskó, hlýja sokka og létta flíspeysu á Helga, sokkabuxur vetrarins á Unu og leyta árangurslaust að peysu á Unu og úlpu á Iðunni. Iðunn á reyndar Nike úlpu sem hún erfði eftir Dag besta frænda sinn. Sú virðist bara fín og hlý og ágæt til vetrarbrúks....þar til reynt er að koma barninu í hana. Úlpan er alveg feyki nógu stór, en virðist vera sniðin á börn sem annað hvort eru mjórri um mittið en daman okkar, eða sem er alveg sama þó þau komi ekki höndum niður með hliðum. Semsagt litla daman eins og strengdur kálfur með handleggina útrétta í þvingaðri "Hills are alive with the sound of music" stöðu..... ekki alveg nógu gott. Verra er að hér í UK gengur bara ekkert að finna almennilega úlpu - hvað þá kuldagalla, því mér datt í hug að hann gæti etv líka verið ágætis lausn, þó Iðunn eigi reyndar kuldabuxur sem hagsýna mamman keypti á útsölu í POP í vor. Kuldagallar eru bara til upp að 6 mánaða stærð, og úlpur eru allar barbíbleikar eða gylltar (!), með þrengingu í mittið.....úff! The search continues!
Í dag gerðist líka sá merkisatburður að Iðunn fór í fyrsta sinn ein í bað. Hún var smá skelkuð fyrstu sekúndurnar, og tók nokkra gúlsopa af baðvatni áður en hún lærði að maður verður að bera höfuðið hátt við baðskrið, en svo fannst henni þetta mesta sport. Við erum óskaplega fegin, enda stundum leiðinlegt fyrir fullorðna að fara í hlandvolgt bað sem rétt nær að væta rasskinnarnar.
2 ummæli:
Sérleg skemmtilegar myndir í dag af fjölskyldulífinu. Ég fékk heilsubætandi hláturskast í einsemdinni. Hér er reyndar yndislegt vetrarveður, sól í allan dag, logn og blíða. Var að koma frá því að sjá mynd um Dieter Roth á kvikmyndahátíðinni.Mjög gaman.
Þetta blogg er svo gott fyrir geðheilsuna. Enda er stúlkan sannkallaður gleðigjafi. Eða eru þetta kannski bara undarlegar ömmur sem sitja í sæluvímu og horfa á barnabarnið hoppa og skríkja.
Skrifa ummæli