
Það eru rétt um fimm mánuðir síðan við fluttum aftur til Englands en samt er eins og "nýja" lífið, enska lífið sé fyrst nú að komast í gang. Við flæktumst svo mikið í sumar og september, Helgi var í fríi, ég í frjálsari rútínu, við vorum heima í heilan mánuð og þar fram eftir götunum. En allt í einu í dag var eins og lífið okkar hér væri loks að komast í fastar skorður. Skólinn að byrja hjá mér og fótaferðatími orðinn 06.40 að venju, Helgi byrjaður í vinnu, Iðunn að byrja í leikskóla. Í raun og veru er þetta í fyrsta sinn sem lífið kemst í fastar skorður síðan ég fór heim til Íslands að eignast "stuttunginn" okkar fyrir tæpu ári síðan. Þó það sé alltaf gaman að vera í sumarfríi, og fríi yfirleitt, er samt eitthvað mjög traustvekjandi við haustrútínuna. Ekki spillti fyrir að dagurinn í dag var í raun fyrsti alvöru haustdagurinn: fallegur, heiðskýr, tær, en andkaldur (5C í morgun) og vetrarlykt af blænum. Við Iðunn fórum tvær einar til Durham í fyrsta sinn. Lögðum bílnum í vinnunni og röltum 25 min leið í Stígvélabæ (Yellow Wellies Nursery) að byrja fyrsta aðlögunardaginn. Ég tók í fyrsta sinn eftir laufum á stéttum og litabreytingum í trjánum....konu með húfu og barni með trefil.
Fyrsti dagurinn gekk vel. Við hittum Hayley sem verður fóstran/kennarinn hennar Iðunnar og leist vel á hana. Ég þurfti að skrifa undir alls kyns pappíra, og Iðunn lék sér á meðan. Á morgun skil ég hana eftir í 2 tíma og á mánudaginn í 3, og svo byrjar gamanið fyrir alvöru. Ég verð samt að segja að ég er ánægð með leikskólann og ég hugsa að Iðunn verði ánægð þar....það er bara erfitt fyrir hjartað í mömmunni að hugsa til þess að skilja hana þar eftir. Leikskólar reyna oft mun meira á mömmur en börn.
Helgi vann heima, bestaði forrit og fór á símafund. Ánægður að öllu öðru leyti en því að versnandi gengi hefur valdið því að við getum ekki keypt tölvu handa honum sem stendur...verðum að bíða í svona 6 vikur til viðbótar, en ég er að vonast til að geta lánað honum tölvu af labbanum mínum þangað til.
En sem sagt, haustið komið....og Pollýanna incarnate er strax farin að líta á björtu hliðarnar - eldur í arninum, kerti um allt hús, ullarteppi og heitt kakó - haustið getur líka verið yndislegur tími!
4 ummæli:
Og lítill rauður "haustnebbi", nú koma lopapeysurnar frá ömmu FK sér vel.
Kveðja úr snjónum, Eygló frænka "eldri"
Ekki get ég sagt að ég deili þessari haustrómantík með þér dóttir sæl. Allra síst núna, þegar farið er að snjóa í Reykjavík. Ég er hrædd um að Pollýönnugenin séu ekki frá mér. Kannski fylgja þau ljósa hárinu, sem enginn veit hvaðan kemur. Einhver Bjartur í Sumarhúsum leynist kannski aftur í öldum. En yndislega fallegu myndirnar af Iðunni glöðu hressa ömmuna í haustmyrkrinu.
Það er rosa gott að halda fast í það að mömmunum finnist leikskólavistin mun erfiðaðri en börnunum. Gangi ykkur rosalega vel
Iðunn bjútí...
Þetta eru aldeilis skemmtilegir tímar hjá ykkur þrátt fyrir að litla daman þurfi nú að standa á eigin fótum og bjarga sér í leikskólanum.
Skrifa ummæli