þriðjudagur, 7. október 2008

Af stígvélum (gulum) og Íbsen



Einu sinni sátum við afi minn Bragi ansi margar vikur við að lesa prófarkir af leikritum Ibsens. Við höfðum oft lesið prófarkir saman, ekki kannski alltaf jafn áhugaverðar, ég man ég las með honum verslunarsögu Vestur Skaftafellssýslu sem unglingur og verð að játa að ég kvartaði sáran yfir einhæfni þeirrar prófarkar, segir líklega meira til um unglinginn en um handritið...
En sem sagt - Ibsen. Til að nýta nú tímann sem best meðan á lestrinum stóð fitjaði ég upp á peysu á sjálfa mig. Í sönnum Unu stíl var hún í öllum regnbogans litum, dökkfjólublá í grunninn, með marglitum röndum. Það segir ansi mikið um hve verkið var erfitt og torsótt að ég kláraði peysuna, og amma mín Stína sem þá var enn nokkuð góð í höndunum saumaði hana saman fyrir mig. Ég gekk í þessari Ibsenpeysu í mörg ár, en þegar ég fluttist til Durham lenti ég í þeirri ógæfu að upp kom mölur í geymsluskáp hjá mér í Hild Bede College og peysan varð honum því miður að bráð....ég verð samt að játa að ég geymi götótta peysuna enn, minninganna vegna.
Þegar ég vissi að von væri á barni for ég að grúska í skápum hjá mér og fann þá afgangana úr Ibsenprjóninu, marg flutta milli húsa. Mér datt í hug að fitja e.t.v. upp á peysu, sem ég og gerði en nú var engin amman, enginn afinn og enginn Ibsen til að halda mér við verkið, og ég var varla komin upp að handveg þegar barnið fæddist og handverkið gleymdist. Einhverntíma eftir að ég kom aftur til Durham fann ég þetta hálfkláraða verkefni, og rann ansi fljótt upp fyrir mér að ekki væru nægir afgangar til að klára peysuna, en einhvers staðar hefur amma Stína leynst í huga mér því ég breytti bara hugmyndinni í vesti, og kláraði loksins verkið.

Í dag var fyrsti heili dagur Iðunnar á leikskólanum. Sama hversu góður skólinn er verkjar alltaf smá í mömmu hjartað að skilja barnið sitt eftir til að þurfa á fyrsta sinni að takast eitt á við lífið.....8 tímar án mömmu í ókunnu landi, innanum ókunnt fólk. Því er vel við hæfi að í dag klæddi ég stelpuna mína í fyrsta sinn í Ibsenvestið góða. Það er ef til vill ekki fallegasta vesti sem sést hefur og ekki jafnast það á við vestin hennar ömmu Fanneyjar í handlagni og fegurð, en það hélt á henni hita í leikskólanum og vafði hana allri þeirri umhyggju sem ég gat gefið henni og sem ég vissi að amma Stína og afi Bragi hefðu viljað veita henni á fyrstu skrefum sínum út í lífið.
Varla þarf að taka fram að allt gekk vel á leikskólanum. Iðunn undi sér vel, borðaði vel, svaf vel, lék sér fallega og var hvers manns hugljúfi, eins og vera ber þegar maður er umvafinn ást og umhyggju margra kynslóða.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

knús og kossar!

Nafnlaus sagði...

Þessi fallega minning um Ibsen, afa Braga og ömmu Stínu kom út tárunum á viðkvæmu ömmunni ekki síður en tilhugsunin um litlustu stelpuna í burtu frá mömmu og pabba svona lengi.Ég veit að hún spjarar sig, en hún er bara svo lítil.

Nafnlaus sagði...

Amman er að bjástra við að prjóna vesti á mæðgurnar. Mér sýnist þetta vera snilldarvesti sem Iðunn klæðist þessa dagana. Auk þess sem góðar vættir vernda hana örugglega.

Nafnlaus sagði...

Jæja krakkar mínir er ekki kominn tími á meira blogg? Það er svo skemmtilegt og lífsnauðsynlegt fyrir sálina að lesa Iðunnar-blogg á þessum svartnættis- og krepputímum.

Nafnlaus sagði...

Koma svo!

Una sagði...

Hmmm.... ekki viss um að Diljá hafi efni á að reka á eftir fólki í bloggheimum....

Nafnlaus sagði...

æj þetta er ekki auðveldur tími fyrir foreldrana, en aftur á móti mjög auðveldur fyrir Iðunni sem gleymir mömmu um leið og hún er komin út á gangstétt! Vestið er flott og sagan falleg.

En nú skalltu nú annað hvort taka á þessu næturbrölti eða hætta að kvarta! Ég held að þú viljir bara ekki hætta nætursopunum því þeir eru svo kósí :) Ég var svo heppin að þegar gjöfunum fækkaði þá fór mjólkin og ekkert aðskilnaðarvesen

Nafnlaus sagði...

Tárvota amman er víst ekki sú eina sem skældi við að lesa þetta...

Knús á línuna frá okkur mæðginum, nú í Kópavogi.
Stefnum að því að taka ykkur okkur til fyrirmyndar og fara að henda inn myndum af litla Úlfi inn á síðuna :)

Kv,
Gríma og "Úi"