* ÞESSI FÆRSLA VAR SKRIFUÐ Í GÆR, EN EINHVERRA HLUTA VEGNA UPPFÆRÐIST HÚN EKKI ÞÁ
Í dag áttum við mæðgur rólegan dag saman á meðan Helgi fór í sinn fyrsta vinnudag í Hull. Veðrið var heldur leiðinlegt framanaf svo við dunduðum okkur heima við leik og störf, og skruppum svo aðeins á kaffihús um 3 leytið....tíðindalítill dagur, en skemmtilegur samt. Allt gekk vel hjá Helga. Hann kom sæll heim eftir heilan dag í Hull, ánægður með nýja starfið og vinnufélagana.
Í lokin, svona í anda dagsins, er svo algjörlega non-happening vídjó af Iðunni með blöðruna sína, sem líklega er mjög leiðinlegt fyrir alla aðra en hörðustu aðdáendur - þ.e. ömmu Gee og ömmu fk.
3 ummæli:
Þetta var rosalega spennandi. Ég beið alltaf eftir sprengingunni. Þetta var samt mun flottara en margar listrænar stuttmyndir á nýliðnum stuttmyndahátíðum
sprengingin var yfirvofandi, ótrúleg spenna...!
Mjög skemmtilegt!! Ónýtur dagur í gær af því að bloggið vantaði!Þetta er ávanabindandi í hæsta máta.
Skrifa ummæli