
Miðvikudagur var tíðindalítill. Mamman sat á fundum allan daginn. Helgi og Iðunn undu sér vel. Veður skaplegt. Nei, það er lýgi, hér var yndislegt haustveður - blár himinn og stilla, en ég fékk ekki að njóta þess vegna fundarsetu. Þetta er semsagt svona algjör ekkipóstur fyrir Iðunnarfíklana (samanber komment við síðustu færslu). Ekki samt viss hvort ég sé ekki að sýna einum of mikla meðvirkni með þessum innihaldslausu færslum? Er til eitthvad Alanon fyrir aðstandendur Iðunnarfíkla?
2 ummæli:
Bara ný mynd af litlunni er nóg til að gleðja ömmuna. Bara að fá að fylgjast með þó ekkert sérstakt sé um að vera. Ekki hætta !
Gaman gaman ...
að fylgjast Iðunni uppgötva heiminn. Allt frá því að vera forsíðustúlka á virtu vísindatímariti í það að hoppa og leika sér að blöðru. Þetta er allt jafn spennandi fyrir okkur.
Skrifa ummæli