föstudagur, 10. október 2008

Vikulok


Hér hefur verið mikið að gera síðustu daga og mamman allt of úrvinda á kvöldin til að blogga eða mynda. En nú eru loks komin vikulok og við Iðunn erum í vinnunni minni að bíða eftir Helga sem spilar fótbolta með fornleifafræðingum og nýtum tímann til að skella inn einu bloggi.
Nýja rútínan okkar hefst með fótaferð kl. 06.30, sem reynir svoldið á mömmuna sem enn er ekki að fá nema svona þriggja tíma svefn á nóttu.....allt í lagi á mánudögum en orðið erfiðara á föstudögum. Iðunn fór í leikskólann fjórum sinnum í þessari viku. Fyrst aðlögun í þrjá tíma á mánudag, og svo fulla vist í 8 tíma næstu 3 daga. Allt hefur gengið vel, hún er glöð og borðar vel, leikur sér fallega og er ánægð með lífið, en síðasta daginn fór nú samt að bera svoldið mikið á mömmusýki - hún grét þegar ég skildi hana eftir (mjög erfitt fyrir sálina í mér!), og mátti ekki líta af mér eftir að ég sótti hana síðdegis. Jafnvel pabbi, sem annars er manna vinsælastur, hlaut ekki náð fyrir augum dömunnar, og mamma mamma mamma mamma var sú eina sem mátti halda á henni og aldrei hverfa úr augsýn. Litla skinnið skilur náttúrulega ekki alveg hvað er í gangi, en ég vona að hún venjist þessari nýju heimsmynd nokkuð fljótt því hitt reynir svo á mömmuhjartað.
Annars er það helst að frétta að Helgi fór í dag til Newcastle í viðtal til að fá National Insurance number...nokkurs konar skattanúmer.... og nú er allt klárt til að hann geti farið að fá útborgað í sterlingspundum, sem er ágætt á þessum síðustu og verstu tímum. Annars erum við orðin svo leið á bölsýni og barlómi að við nennum hvorki að ræða né blogga um íslenska efnahagsástandið.
Að lokum viljum við svo óska Fríðu, Gunna Geir og Kristni Erni til hamingju með hana Maríu Dís litlu sem fæddist í gær og óska þeim góðs gengis í Bostonferðinni. María er greinilega dugleg stelpa sem mun spjara sig vel þó mikið verði á hana lagt. Við hlökkum til að sjá hana næst þegar við komum heim!

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Aftur er eru Dagur fyrstur að commenta, eru ömmurnar að missa touchið. Skilaboð til Iðunnar : Þetta leikskólastúss bjargast allt saman, það verður fyrst gaman þegar þú getur byrjað að labba því þá nærðu í allskonar hluti sem áður voru utan seilingar. Þannig að "you just hang in there" frænka.

Nafnlaus sagði...

Gaman, gaman, loksins blogg.Ömmuhjartað þolir líka illa að heyra af lítilli stelpu, sem er að byrja að kynnast alvöru lífsins og skilur ekki af hverju mamman þarf að vera að fara í burtu.En gott að sjá hvað hún er sæt og glöð í vikulokin í fína umhyggjuvestinu sínu.

Nafnlaus sagði...

Birgir Óli tekur undir orðin hjá Degi, og þar fyrir utan kunnum við nú ýmsar kúnstir til að reyna á mömmurnar. Alveg nauðsynlegt til að komast í gegnum þetta stranga uppeldi. Ég t.d. borða afar sjaldan á leikskólanum til að láta mömmu hafa samviskubit. Mamma mín segir samt að ég sé að þyngjast ágætlega

Ég læt hana ekkert vita af því að ég skemmti mér konunglega og læt heyra hressilega í mér þegar það er kveðjustund. Ég læt hana finna allhressilega fyrir því þegar hún sækir mig líka.

Þetta er auðvitað allt með ráðum gert þannig að hún dekri sérstaklega við mig þegar ég er með henni :)

Iðunn, þú ert greinilega búin að læra réttu taktana, reyndu að blekkja mömmu þína örlítið lengur svo hún dekri sem allra allra mest við þig....

Nafnlaus sagði...

heyrðu, missti ég af því að barnið er farið að standa!!! Er hún kannski farin að ganga líka? já og við erum með útigalla, kemur með næstu ömmuferð, í 86

Nafnlaus sagði...

og ég missti greinilega líka af því að barnið mitt kann ekki bara að tala heldur líka að skrifa! mikið verður gaman þegar Örvar og Anna Lilja hittast næst! Spurning hvort þið takið með ykkur dúkkur í Bjartsýnisboðið!

Nafnlaus sagði...

Sidan hvenaer kann barnid thitt ad tala Katla?! Ekki verid ad segja mer. Kann hann ad segja Dilja?

Nafnlaus sagði...

Jú jú Iðunn löngu farin að standa, stendur upp við allt sem hún kemst upp að, meira að segja rennislétta veggi og hurðir. Byrjaði á þessu fyrir alvöru þegar við komum að heiman í lok ágúst. Hins vegar vex hún ekki alveg eins hratt og frændi sinn.....hugsa að 86 mundi gleypa hana.....hún er enn í 73, og ég var í mikilli bjartsýni að vona úlpur í 80 mundu ekki virðast allt allt of stórar. Þiggjum samt gallann með þökkum, mun ábyggilega koma sér vel.
Ég var einmitt að dást að ritfærni Birgis Óla og Dags - greinilega snillingspiltar báðir tveir!

Nafnlaus sagði...

Iðunn er snjöll eins og hún á ættir til. Hún kann að spila á tilfinningar foreldranna, allan skalann. Flott kona áfram Iðunn.

Nafnlaus sagði...

Er eg ad sja rett, er harvoxturinn eitthvad ad fara i gang? Syndist eg sja eitthvad meira ljost har a einhverjum af sidustu myndunum en kannski er eg ad imynda mer hluti.