fimmtudagur, 11. september 2008

Nóg að gera á fimmtudegi


Þrennt gerðist markvert í dag: Una náði loksins loksins að klára að pakka niður allri skrifstofunni sinni, Helgi sat sinn fyrsta vinnufund sem MC Fellow, og kórstarf í ellismellakórnum hófst að nýju.

Skrifstofupökkunin var alveg ótrúlega mikið og leiðinlegt verk. Sýndi mér samt hve fljótt hlutir sem maður sankar að sér breytast í drasl......og hversvegna í ósköpunum hef ég verið að geyma gamlar fundargerðir frá 1999 og óteljandi prófarkir af doktorsritgerðinni minni? Hins vegar fann ég líka ýmislegt sem gaman var að sjá aftur, svo sem eins og myndina sem sjá má hér neðanmáls og sannar það sem mamma mín er alltaf að segja: að Iðunn sé ansi lík mömmu sinni! En sem sagt búin að pakka öllu, og 25 sekkir af drasli eru farnir á haugana - góður undirbúning undir heimfluttning að ári.

Helgi fór á Skype fund hérna heima með mönnum í Seattle, Vín og Hull. Allt gekk vel og leggst starfið vel í hann. Nú er búið að stimpla alla pappíra hjá Evrópusambandinu og hann því endanlega kominn í starfið. Húrra fyrir því!
Kórinn var samur við sig - falskar nótur og mæmarar, en bara nokkuð gaman að hitta suma, og enn meira gaman að fá að þjálfa raddböndin aðeins. Verð samt að játa að ég er farin að hlakka til að komast til Íslands og í betri kór.

Iðunn er yndisleg eins og alltaf og búin að vera í bananastuði í allan dag. Hún kom með mér í smá skrepp að skila afmæliskorti til Lucy, dóttur Barböru vinkonu minnar, og skreið þar um alla stofu og skildi við allt á tjá og tundri...ég er búin að sjá að hún heldur mér í ansi góðu formi með að þurfa alltaf að vera að hlaupa á fætur til að forða henni frá slysum, eða brothættum munum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það fer nú ekki á milli mála að þið mæðgur eruð afar líkar.

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá þessa mynd aftur. Tekin á Ásvallagötunni. Þú nýfarin að sitja ein sýnist mér. Sennilega á svipuðum aldri og Iðunn er núna. Eins og sjá má í bakgrunninum svafst þú ennþá í vöggunni, ekki búin að uppgötva að hægt sé að setjast upp eða reisa sig upp í rúminu. Snakk om déja vu.