
Eplafjölskyldan dreif sig í myndatöku á dögunum og má sjá afraksturinn hér að ofan. Við erum afskaplega ánægð með útkomuna og getum loksins séð hve lík Iðunn er okkur báðum.
Við erum ansi meðvituð um hve mikið amma Gobba saknar okkar allra, enda skrifar hún mörg einsömul og vængbrotin komment á síðuna. Því ákváðum við að best væri að taka myndir sem vísa í hennar "comfort zone", og þar sem hún sæi svip með okkur öllum og gömlum myndum af sjálfri sér. Má sjá afraksturinn hér:

Fyrir alla aðra sem vilja fínar myndir af sjálfum sér má benda á: http://yearbookyourself.com/
og að lokum....amma G (Amma Gee!) komin aftur í sixtísgírinn:
1 ummæli:
Þvílíkt og annað eins. Ég sit hér og græt úr hlátri ein með sjálfri mér. Það er til mynd af mér með nákvæmlega sömu hárgreiðsluna og á neðri myndinni, tekin sumarið 1964 og nú sé ég allt í einu smá svip með mér og Unu. Ég kannast ekki alveg við stílinn á efri myndunum. Hlýtur að vera fyrir mitt minni! Iðunn er auðvitað allra sætust eins og alltaf, sérstaklega með kisugleraugun.Takk fyrir ömmu Stínu hláturskastið.
Skrifa ummæli