
Enn sem komið er er Iðunn bara með eina tönn. Mamman og pabbinn voru nú samt svo ánægð með tönnina að þau vildu endilega sjá hana og allra helst að fá að sýna hana öðrum, en Iðunn er ekki á sama máli....ég held að tönnin hafi verið vikugömul þegar ég fékk að sjá hana fyrst. Allar götur síðan hef ég nýtt hvert tækifæri til að reyna að ná af henni mynd til að sýna Iðunnarömmum og öðrum aðdáendum, en allt kom fyrir ekki, aldrei sást tönnin! En loksins loksins er komin mynd af tönninni, ef vel er að gáð! Og að neðan má sjá heimasætuna nota þessa fínu tönn til að skafa innan úr epli - Nammi namm!
2 ummæli:
Flott tönnsla :)
Litlasta, sætasta felutönnin! Æ hvað ég hlakka til að sjá hana og finna fyrir henni.
Skrifa ummæli