miðvikudagur, 10. september 2008

Klaufabárður


Það erfiðasta við að læra að skríða, standa upp og almennt færa sig úr stað í veröldinni, er að allt í einu fara alls kyns dauðir hlutir að ráðast á mann! Það sem af er þessari viku hafa bæði gólf og stólar ráðist til atlögu gegn Iðunni og er hún orðin ansi krambúleruð í framan, með tvo stóra marbletti á enninu og rispu á nefinu. Við vonum bara að engir fari að kæra okkur til barnaverndaryfirvalda fyrir 111. meðferð á ungabörnum!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Uss og svei! Svona er að búa með ofbeldisfullum húsgögnum sem ráðast á lítil börn.
kv. Eygló 8+

Nafnlaus sagði...

Ósköp eru að sjá blessað barnið. Þið eruð heppin að vera ekki í Svíþjóð. Þar var ég kölluð inn á teppið hjá lækninum í barnaskoðuninni af ofursænskri hjúkku vegna marbletta á sköflungunum á þér Una mín.