
Þegar lítlar stelpur eru komnar með tennur og orðnar mikil matargöt er náttúrulega nauðsynlegt að eignast sinn eigin stól, og þó fyrr hefði verið. Í morgun var bankað upp á í Victoria Road, og þar kominn maður með þennan fína hárauða stól sem foreldrarnir höfðu pantað handa Iðunni. Þvílík lukka! Aldrei aftur að þurfa að þola þá niðurlægingu að láta beisla sig í kerru eða bílstól til að borða kvöldmatinn! Og ekki skemmir fyrir hve vel hann passar við fílanáttfötin úr Lindex, sem Iðunn er loks vaxin uppí, einungis 6 mánuðum eftir ferð okkar til Svíþjóðar.

Að öðru leyti er allt gott að frétta - Iðunn er með smá nasakvef en ekkert sem háir henni, og mamman komin langleiðina með að pakka niður skrifstofunni sinni.
1 ummæli:
S� er grobbin og allt � st�l! M�tti halda a� amman hef�i vali� outfitti�. Er enn a� hl�ja a� myndunym fr� � g�r.
Skrifa ummæli