sunnudagur, 14. september 2008

Letilíf


Hér er búið að vera ansi rólegt í dag. Við mæðgur dunduðum okkur við lestur fram eftir degi á meðan Helgi skoðaði framboð á fartölvum á netinu. Seinni partinn fórum við svo í smá göngu og litum við hjá Donnu. Á leiðinni heim var rólað af miklum krafti á Demesnes rólónum sem alltaf gerir mikla lukku hjá Iðunni. Annars erum við bara í því að undirbúa Barcelonaferð - þvo föt og skipuleggja hitting við leigusala osfrv. Á morgun er svo fyrsti vinnudagurinn á nýju skrifstofunni og vonast ég til að geta nýtt hann vel.
Takk takk fyrir kommentin á síðustu færslu....alltaf gaman að fá sem flest...hint hint!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Les alltaf og fylgist með litla bjútíinu :D:D
Og auðvita hvað mamman og pabbinn eru að bralla ;)

Knús á ykkur
Fríða

Nafnlaus sagði...

Hver er duglegust að kommenta? Ég bara spyr? Dyggur lesandi bloggsins og miður mín, þegar dagur fellur úr eins og þessa helgi. Búin að tékka mörgum sinnum í dag. Var að koma úr mat hjá Æsu og Jóhannesi, södd og sæl. Stórt (m)ömmusknús.

Nafnlaus sagði...

100 póstar! Skelfilega ertu ofvirk í þessu, maður bara skammast sín fyrir lélegheitin á eigin fjölmiðli í samanburðinum.