sunnudagur, 5. október 2008

Haustverk


Ég er ein af þeim sem nýt þess að eiga lítinn garð til að sitja í á sumarkvöldum og teyga gin og tónic, eða til að rúlla stelpunni minni úí í vagninum sínum um miðjan dag og leyfa henni að lúlla við fuglasöng og flugusuð. Yfirleitt er tiltölulega auðvelt að halda við litla garðinum okkar, en sumarið í ár, með endalausum rigningum og leiðindaveðri var svona týpískt maximum investment, minum return dæmi, þar sem aldrei var hægt að sitja úti en allt varð úr sér vaxið á mettíma.
Í morgun rann um yndislegur haustdagur, bjartur og sólríkur, ansi kaldur samt, og var því ákveðið að ráðast á helming frumskógarins, þann sem liggur fyrir allra augum og snýr út að götunni, og undirbúa hann undir veturinn. Bakgarðurinn býður betri/annars tíma. Eftir 2 stunda vinnu og tvær ferðir á haugana er garðurinn nú hinn snyrtilegasti, og þurfa nágrannarnir ekki lengur að skammst sín fyrir að búa í návígi við okkur. Þvílíkur léttir á húsmóðurinni.
Á meðan við stóðum í stórræðum fyrir framan hús kom Roddy nágranni okkar á nr 5 að skoða Iðunni, og sendi henni síðar um daginn svohljóðandi bréf og fylgdu því 15 pund:
For Lovely Idhunn
Dear Idhunn. A little present for you! Mum and Dad will know best how to spend it for you. See you soon. Roddy No 5
Iðunn er ánægð með þetta - ætli hún leggi það ekki í úlpusjóðinn...það er farið að verða ansi svalt...a.m.k. verða peningarnir ekki lagðir í íslensk hlutabréf á næstunni.
Nóg í bili - vonum að einhverjir aðrir lesi en ömmurnar, þó þær séu náttúrulega alltaf jafn velkomnar.
Velbekomme!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ömmurnar eru náttúrulega tryggustu aðdáendurnir, sem alltaf lesa bloggið aftur og aftur og gleðjast yfir öllum fréttum og jafnvel fréttaleysi. Stórt ömmuknús til Iðunnar.

Nafnlaus sagði...

Það er ekki amalegt að vinna sér inn gjaldeyri á þessum síðustu og verstu tímum. Gott að eiga góða aðdáendur.