
Föstudagur runninn upp og loksins kominn tími til að flytja skrifstofuna. Iðunn hjálpaði okkur Helga að taka allt upp úr kössunum og ganga frá, og þó ég segi það sjálf er þetta hin huggulegasta skrifstofa og verður vonandi gott vinnuumhverfi. Verst er þó að glugginn er svo hátt uppi að það er engin leið að sjá út um hann án þess að koma sér upp einhverju speglasystemi. Jæja, maður freistast þá ekki til að góna út um hann langtímum saman heldur.
Fleiri flutningar voru í gangi í dag, því afi Viðar og amma Titti hafa fengið nýja húsið sitt afhent - við óskum þeim til innilega til hamingju með það og hlökkum til að koma til þeirra sem allra allra fyrst til að skoða herlegheitin.
PS 100. pósturinn á blogginu - kommentið nú í tilefni dagsins svo ég viti að ég sé ekki bara að blogga fyrir ömmu Gee (þó kommentin hennar séu náttúrulega alltaf jafn skemmtileg og velkomin!)
5 ummæli:
Sú er smákerlingarleg og ábúðarmikil í flutningunum! Nýja skrifstofan er einstaklega fín og snyrtileg sérstaklega miðað við þá gömlu, sem var eins og útibú frá Góða Hirðinum með 20 skítuga kaffibolla dreift um borð, hillur og gluggasyllur. Til hamingju Una mín.
Hmmmmmm voru nú kannski aldrei nema svona 9 kaffibollar.....
Eg fylgist med, daist ad einhverjum sem nennir ad blogga oftar en a 2 vikna fresti. Lofa ad blogga bradum aftur, thad er bara ekki mikid meira ad fretta en 'bara strakar og bjor' eins og mamma segir.
ég les þetta alltaf! Er bara ekki alltaf í skapi til að kommenta...þið ættuð að vera með teljara svo tölurnar gætu talað sínu máli um aðsóknina inn á þessa síðu! :)
ekki mikill tími til blogglesninga hér á bæ um þessar mundir, en þessir 100 sem komnir eru er allir bráðskemmtilegir
Skrifa ummæli