föstudagur, 28. nóvember 2008

Durhamdagur


Föstudagur og familían fór að venju öll saman til Durham.
Helgi ætti nú eiginlega að fá hraustleikaverðlaun fyrir að hafa leikið knattspyrnu í dag í nístingskulda og myrkri - vinir hans heima á Íslandi eru eflaust löngu búnir að skipta yfir í innibolta. Samkvæmt eigin frásögn var hann langbestur og skoraði langflest mörk!
Annars fór dagurinn okkar í Durham mest megnis í að setja upp og prófa ný tæki á labbanum mínum. Iðunn aðstoðaði. Allt komst í lag að lokum og labbinn er að fara að taka á sig endanlega mynd. Í öðrum fréttum er það helst að þegar við komum heim í kvöld var loks búið að klára gólflögnina í stofunni, svo við getum flutt aftur inní hana á morgun. Vonandi er ekki langt í að borðstofan verði tilbúin líka.
Góða nótt, og gleðilega helgi!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fyndinn svipur á minni. Greinilega gaman að vera aðstoðarmaður í labbi. Tennurnar heldur betur farnar að njóta sín. Hér er allt í kulda og trekki, en talið niður þangað til stórar og litlar stúlkur skila sér heim. Knús og kossar frá ömmunni og kisu í turninum.

Nafnlaus sagði...

Helgi, aldrei að draga neitt undan þegar fótboltinn er annars vegar, "Samkvæmt eigin frásögn var hann langbestur og skoraði langflest mörk!" Þetta hljómar eins og another day at the office.

Örvar