
Hér er enn ekki komið gólf en lítur út fyrir að verkefninu ljúki á föstudag. Þá er bara eftir að setja allt aftur á sinn stað. Úff!
Nýjustu fréttir eru að þriðja tönn Iðunnar er loks að koma. Hægri framtönn í efri góm. Mamman er samt svo vonlaus mamma að hún tók ekki eftir því fyrr en tönnin var komin í gegn og vel það.
Myndin að ofan sýnir það sem Iðunn hefur lengi vitað: ungar stúlkur eiga aldrei of margar duddur!
4 ummæli:
Snuddur eru skemmtilegar, þær eiga bara til að týnast.
Dagur
kitt
ks
Hér týnast einmitt snuðin ansi oft - snuddhrúgan á myndinni er afrakstur duddleitarinnar miklu sem tók Helga allan gærdaginn.
Húrra fyrir nýrri tönn!Amman gafst upp á að bíða eftir blogginu í gærkvöldi og fór bara að sofa.Skítkalt og óyndislegt hér í dag. Best að drífa sig heim og undir teppi.
Koss og knús frá ömmunni á Bandinu
Skrifa ummæli