laugardagur, 29. nóvember 2008

Lammet og skrammet


Við fórum í yndislegan göngutúr í dag til Egglestone Abbey, sem sumir muna kannski eftir að hafa heimsótt þegar við giftum okkur. Dagurinn í dag var yndisfagur. Kalt og frost yfir öllu, en algjört logn og því unaðslegt að komast út í góða göngu. Við gengum meðfram ánni, heimsóttum hesta og skoðuðum endurnar, sérstaklega eina sem var búin að koma sér makindalega fyrir á miðri göngubrúnni yfir ánna Tees. Leiðin tilbaka gekk ekki eins vel. Í fyrsta lagi var Iðunn orðin lúin og farin að vola, svo við tókum hana úr bakpokanum og héldum á henni til skiptis í fanginu. Svo fór ekki betur en svo að ég rann í hálku og beint á rassinn í einni brekkunni (var samt að halda mér í handriðið mamma ef þú lest þetta!), með Iðunni í fanginu. Iðunn kom ekkert harkalega niður enda verndaði mamman hennar hana eins og móðureðlið segir til um, en henni brá ansi mikið og fékk hálfgert hysteríiskast. Verr fór fyrir mömmunni sem gat ekki borið fyrir sig hendurnar vegna barnsins og hélt svo fast í handriðið að tognaði á öllum axlarliðböndum í fallinu og handleggurinn því lítils nýtur sem stendur. Að auki er ég líklega með ansi ljota marbletti á rassinum og kom hnykkur á bakið sem gerir mig enn meira farlama. En Pollýannan í mér segir að þetta hefði allt getað farið verr, allir óbrotnir, göngutúrinn bara fínn þrátt fyrir þetta og gott að hafa fengið að njóta útiverunnar. Hitt er verra að enn er eftir að koma húsgögnunum á sinn stað - kannski við verðum að kalla út Daníel til hjálpar?
Fleiri eru illa leiknir í 11 Victoria Road - Tala kisa hefur lent í slag og er með ljótt sár á lendinni sem mér sýnist vera að koma sýking í. Líklegt að hún verði því að fara í sprautu á næstu dögum.
Þar með er lokið hrakfarafréttum úr Victoria Road.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ja hérna! Við erum þá í stíl mæðgurnar því ég er enn lammet og skrammet eftir að detta beint á andlitið um daginn og gat ekki einu sinni kennt hálku um. Gott að litla stelpan er ómeidd, enda eins gott að hlusta á mömmu sína og halda sér í!Var í morgun að hlusta á Braga syngja með leikskólakórnum sínum. Mikið gaman.
Lemstraða amman

Nafnlaus sagði...

Úff, þetta hefur ekki verið gott. Alveg merkilegt samt hvernig hægt er að vernda barnið þegar svona lagað gerist, manni er svo alveg sama um sjálfan sig (tala af reynslu eftir að hafa hrunið niður tröppur með barn í fanginu) Vona að þú náir að slaka vel á og að þú jafnir þig sem fyrst.
kveðja
Anna Lilja