
Flestir stólar eru inni á baði og Iðunn borðaði bæði hádegis- og kvöldmat við baðkerið, ansi sposk!

Bækur eru í stöflum um öll gólf, upp allan stigann, uppá borðum, undir borðum og svo framvegis, og við gerum ekki annað en elta Iðunni og forða verðmætum bókum. Lausn vandans var samt auðfundinn, hún fékk að hafa einu bókina sem aldrei er lesin og engum er annt um: Nýja Testamenti Gídeonfélagsins, og las hana af miklum ákafa - einkennilegt samt að þrátt fyrir næfurþunnan pappír hvorki beyglaði hún né reif eina einustu síðu. Kannski við séum að vanmeta þessa bók....

Helgi hefur orðið að vinna á stól úti í horni, en hann er þó svo heppinn að lítil aðstoðarkona hjálpar honum að halda við tölvuna á meðan.
Góðu fréttirnar eru þó þær að nú verður þetta líklegast klárað á morgun, og þá getum við byrjað að raða öllu aftur, og hver veit nema maður hendi ekki einhverju líka, svo heimilið verði snyrtilegra, smartara og örlítið mínimaliskara en það var fyrir viku.
3 ummæli:
Þetta er bráðfyndinn pistill og myndirnar sömuleiðis, en litli bókabéusinn lætur ekkert hagga sér. Minnir á mömmu sína á svipuðum aldri. Þetta verður voða fínt, þegar þetta er búið eða svo segir Pollýanna.
Amman í turninum
Ég öfunda ykkur ekki af öllu þessu drasli, en þegar þetta verður allt tilbúið þá verður gaman hjá ykkur. Verst ef þetta verður svo fínt að þið tímið ekki að selja húsið og koma heim í kreppuna.
Amma í kreppu
Kominn timi til ad taka til heima hja ther, synist mer. Ekki sammala, Una?
Dilja thrifaglada
Skrifa ummæli