
Þetta er eitthundraðogfimmtugasti pósturinn á Iðunnarblogginu, og viljum við nota hann til að hvetja alla sem hingað koma til að kommenta og láta vita af sér, þó ekki væri nema í þetta eina sinn. Mér sýnist á teljaranum að hingað komi múgur og margmenni, en samt er það svo að oft líða margar margar færslur þar sem enginn kvittar nema ömmurnar. Þær eiga nú samt heiður skilið fyrir samviskusemi!
Annars er það helst að frétta að við Helgi erum búin að tæma stofuna fyrir gólflögnina á morgunog hlökkum mikið til að búa í húsi með almennilegum gólfum! Hvort við náum að koma öllu á sinn stað áður en Maggi og Cristina koma á laugardag er önnur saga.
Við erum öll farin að hlakka til að koma heim eftir tæpan mánuð. Getum ekki beðið eftir að hitta vini og kunningja og ekki spillir jólahátíðin fyrir, jafnvel á krepputímum. Það er spáð snjókomu hér um helgina svo vonandi kemur það okkur í rétta Íslandsgírinn.
Góða nótt - komum aftur með framkvæmdafréttir á morgun!
9 ummæli:
komment frá mér , ég gat ekki sett inn komment á sundfærsluna. grrr
örvar
Hlökkum til að sjá ykkur þegar þið komið heim :)
Kv, Fríða og fylgifiskar
Við ömmurnar klikkum ekki í kommentunum. Frekar að við kommentum of mikið, NEI aldrei of mikið.
Og ég kíki á síðuna oft á dag. Eða alltaf þegar mig langar að sjá eitthvað skemmtilegt og upplífgandi fyrir sálartetrið.
Ömmutetrið FK
æ já ég veit....ég hef bara ekki alltaf eitthvað að segja :)
kv,
Hildur
ég kommenta nú stundum, drottnigarvink úr norðurbænum Eygló "eldri"
Ég kvitta nú stundum, kannski ekki nægilega miðað við hve oft ég kíki hér inn.
Bestu kveðjur
Anna Lilja
Eg er eins og Hildur, hef kannski ekki oft mikid ad segja. En kiki samt naestum alltaf thegar eg kemst i tolvuna!
Dilja
Þetta virkaði greinilega. Leyndir aðdáendur stíga fram. Við ömmurnar höldum okkar striki. Ég dáist líka að stelpuskottinu oft á dag, sérstaklega eru vídeóin góð til að koma skapinu í lag á myrkum vetrarmorgnum.
Amman í turninum
Ég lít reglulega inn, svo ég þekki nú frökenina þegar ég loks sé hana í egin persónu :)
Kveðja,
Gríma og Úlfur Kári
Skrifa ummæli