

McMaggi og Cristina eru búin að vera hjá okkur yfir helgina og búið að vera svo gaman að fá þau. Í gærkvöldi tóku þau því rólega með Helga og Iðunni á meðan ég söng á tónleikum, og svo skröfuðum við öll langt fram eftir kvöldi. Í dag tókum við svo daginn seint, fórum ekki út fyrr en um hádegi, eftir rólegan morgunmat og 2 könnur af kaffi. Röltum svo um bæinn okkar og sýndum þeim allt það markverðasta, Bowes Museum, miðbæinn, rólóinn, hænurnar og hestana, og enduðum loks á Old Well, áður en við fórum heim og bökuðum eplaköku. Yndislegur dagur. Nú tekur samt erfiðið við, því við Helgi verðum að tæma borðstofuna áður en gólfgaurarnir mæta í fyrramálið.
4 ummæli:
Alltaf nóg að gera á stóru heimili. Gott að Iðunn er geðgóð og lætur bjástur foreldranna lítið á sig fá.
amma fk
Það hlýtur að vera æði að sjá hvernig heimilið er að breytast. Við vorum nefnilega bara með steininn í svo mörg ár áður en við settum framtíðargólfefnin. Ég fæ alveg fiðring þegar ég les þetta hjá þér, minnist svo skemmtilegra tíma, heimilið alltaf að verða meira og meira að manns eigin heimili :)
Annars eru börnin manns alltaf yndisleg, og mundu að þið eruð velkomin í myndatöku með tiltölulega litlum fyrirvara
bestu kveðjur
Anna Lilja
Gaman fyrir ykkur að fá heimsókn af skemmtilegu fólki og nú fer a styttast í að Eszter komi úr annari heimsálfu til að kíkja á ykkur. 2 vikur þangað til ég fer til NY að hitta Diljá og rúmar 3 vikur þangað til litla Iðunn kemur í jólafrí. Gaman, gaman. Á dimmum vetrarmorgni er nauðsynlegt að minna sig á gulræturnar, sem eru að verða fullþroska.
Amma gulrótabóndi.
Takk fyrir góða helgi og fyrir okkur.
Virkilega gaman að rölta um bæinn í fína veðrinu á sunnudaginn. Vona að framkvæmdir gangi vel hjá ykkur.
Biðjum að heilsa öllum
Maggi og Christina
Skrifa ummæli