fimmtudagur, 20. nóvember 2008

Hálfnað er verk þá hafið er.


Loksins loksins loksins er byrjað að leggja gólf í stofunni! Þeir sem ekki hafa komið hingað vita etv ekki hvað þetta er stórt skref. Þegar ég flutti í húsið fyrir 9 árum síðan hafði það verið í útleigu síðan 1975 og var í raun óíbúðarhæft. Fyrsta veturinn fór hitinn aldrei upp fyrir 13 stig innan dyra og ég sat öll kvöld í einu herbergi, undir sæng, í úlpu. Síðan þá er búið að skipta um alla glugga, miðstöð, baðherbergi og útidyrahurð, einangra loftið, mála öll herbergi, físaleggja eldhús, skipta um rafmagn, setja nýtt þak og rennur osfrv. Allt eftir því sem peningar söfnuðust í viðgerðasjóðinn. Eitt það fyrsta sem ég gerði eftir að ég flutti inn var að rífa upp öll illalyktandi pöbbateppi (lesist græn með bleikum rósum og óskilgreindum blettum...blearghh!!), og síðan þá hafa verið hér ber gólf, of léleg til að pússa upp, þakin málningarslettum og öðrum blettum, og vindurinn gnauðandi upp um fúgurnar. Ég sá alltaf fyrir mér nýju gólfin í hyllingum, en einhvernvegin þurfti alltaf að nýta þá peninga sem til voru í meira aðkallandi verkefni. En nú loks er kominn tími nýju gólfanna. Philip og Melvin mættu í morgun og lögðu hálft stofugólfið og ætla að klára á morgun. Á mánudag koma þeir svo aftur og taka borðstofuna. Jibbííjeiiiiii!!!! Hingað til gengur allt vel, eins og sjá má að ofan. Myndin að neðan sýnir hins vegar hvernig borðstofan lítur út þessa stundina - minnir svoldið á sambland af fornsölu og Little Shop of Horrors!


Iðunn tekur þessu öllu með stakri ró, og lætur sig hafa það þó hún þurfi að borða kvöldmatinn umkringd beinagrindum og bókastöflum.
Við viljum þakka kærlega fyrir kommentin við síðustu færslu, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja hingað, jafnvel stutt komment eru skemmtileg! Stundum finnst mér eins og ég sé bara að blaðra eitthvað útí tómið, og það er traustvekjandi að sjá að einhverjir séu að lesa þetta blaður.
Góða nótt!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta verður rosalega flott hjá ykkur og þarna sannast að þolinmæði þrautir vinnur allar. Ég hlakka til að koma og sjá þetta hjá ykkur.
FK amma

Nafnlaus sagði...

Þetta verður glæsilegt.Þvílíkur munur fyrir litla Iðunni að skríða á svona fínu gólfi.

Amma G

Nafnlaus sagði...

Jæja, litla Iðunn, nú verður sko hægt að dansa í nýju skónum á nýja gólfinu!
kv.Eygló frænka "eldri"

Nafnlaus sagði...

Eg vissi ekki ad Helgi vaeri ad koma ad heimsaekja mig herna i Georgiu! Synd ad eg verd farin eftir 53 daga...

Dilja

Nafnlaus sagði...

oh mig langar í ný gólf!

kv,
Hildur