
Amma Gee er mikill gulrótabóndi og er endalaust að sá (Akursels)gulrótum í tilhlökkunarakurinn sinn. Nú getum við sáð í nýja spildu fyrir hana og aðra sem vilja hitta okkur því búið er að panta farið heim til Íslands í jólafrí. Við komum 18.des, og förum aftur 18. janúar svo þetta verður löng og skemmtileg dvöl á Íslandinu okkar. Verst er að ég er víst búin að lofa mér í sjósund með Örvari bróður....í desember/janúar...brrrrrrrrrrrrrrr!
A bientôt!
3 ummæli:
Jibbíiiii ! Gulrætur í massavís. Get ekki beðið eftir að fá að knúsa litlu stelpurófuna mína.
Amma á gulrótaakrinum
Váá þú lætur mig vita þegar þú ferð að synda í Atlantshafinu, mig langar til að sjá það.
fk
Er thad ekki bara Thorlaksmessusund? Hlakka mikid til ad sja ykkur!!!
Dilja
Skrifa ummæli