þriðjudagur, 18. nóvember 2008

Vídjó

Ömmurnar voru að biðja um vídjó, og hér kemur það. Reyndar, eins og oft vill verða, lék daman ekki alveg listir sínar samkvæmt pöntun, en það er gaman að því samt, a.m.k. fyrir eitilharða Iðunnaraðdáendur. Við biðjum um að ekki sé hlustað allt of mikið á söng húsmóðurinnar sem er etv ekki upp á sitt besta!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært. Alltaf jafn gaman að fylgjast með lítilli manneskju þroskast og læra nýja hluti.
Knús og kossar frá ömmu G.

Nafnlaus sagði...

Dynjandi lófaklapp frá aðdáendum á Íslandi.Drottningar vinkið í lokin og mjálmið í bakgrunninum spillir ekki fyrir. Þetta er tær snilld.
FK amman