laugardagur, 22. nóvember 2008

Laugardagsamstur


Stutt blogg í þetta sinn þar sem ég er svo voða bissí. Það er búið að leggja stofugólfið en borðstofan er enn eftir. Hins vegar er ekki enn hægt að ganga frá húsgögnunum eða taka myndir af kláruðu verki, þar sem eftir er að setja lista meðfram köntunum...smá misskilningur milli mín og smiðsins um hver mundi kaupa listana. Þetta varð allt til þess að við urðum að koma bráðabirgðastofu í gagnið og tæma dót úr gestaherbeginu í dag fyrir komu McMagga og Cristínar. Við þeyttumst þvi um allt sem hvítir stormsveiðit í dag. Verst er að það náðist ekki mynd af mér að þurrka af með Iðunni í bakpoka á bakinu. Ég fór á kóræfingu milli tvö og fimm, og á meðan verslaði Helgi í matinn og ryksaug. Nú er maturinn kominn í ofninn, von á gestum hvað á hverju, og klukkutími þar til ég þarf að fara út aftur að syngja á tónleikum.
Rólegri dagur á morgun, sem betur fer!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið að gera þó kaupið sé lágt eins og þar stendur.Sætar nýjar myndir af stelpunni, sem virðist alltaf jafn sæl og yfirveguð á hverju sem gengur.

Kossar og knús frá ömmu og kisu í turninum