
Það er yndislegt að geta átt rólegann dag. Kósíheit í náttfötum fram undir hádegi, rölt svo út í gönguferð um safngarðinn við Bowes Museum, kaffisopi á Costa, (róló!,) og svo íslensk kjötsúpa í kvöldmatinn. Iðunn sofnuð sæl og glöð, foreldrarnir afslappaðir með smá rauðvín, og efni til í eplaköku á morgun. Unaðslegt líf!
2 ummæli:
Jiii hvað maður er sæt og ánægð :D
Knús frá okkur
Fríða og co
Það verður aldeilis gaman að komast á Huldu-róló næst þegar þið komið heim. Iðunn er í svo góðri róló æfingu.
FK amman
Skrifa ummæli