

Iðunn er búin að vera að reyna að finna frelsið í smá tíma, en í dag komst hún loksins á almennilegt skrið og lætur nú ekkert stöðva sig! OK hún kemst bara afturábak sem stendur en þetta er ekkert svona liggja eins og skata og mjaka sér áfram skrið...ó nei! Hún fer alla leið uppá hnén spyrnir svo hressilega með höndunum þar til hún er aftur orðin flöt en mun aftar en áður og endurtekur svo leikinn. Vart má líta af henni þá er hún komin fram á gang eða stigapall, svo nú verður maður að passa að láta hana ekki á gólfið án þess að loka á eftir sér fyrst. Mig grunar að við verðum að fara í IKEA um helgina að fjárfesta í hliði fyrir stigann. Eins er nú loksins komin góð ástæða til að minnka snúrufjöldann sem liggur eins og spagetti um allt gólf.
En í kvöld sofnaði amk enginn jafn sæll og stelpan sem fer sínar eigin leiðir, með bros á vör og ofur grobbin!
Verst er að mamman verður að fara að ryksjúga oftar, því ástandið á buxum barnsins kemur upp um mann ef langt líður á milli gólfþrifa....
UPDATE Kl. 20.00
Ég gat ekki annað en hlegið þegar ég leit inn á Iðunni rétt í þessu - litla daman er sofnuð á fjórum fótum, í miðri skriðstellingunni! Verst að ég þorði ekki að taka mynd ef hún skyldi vakna...
9 ummæli:
Sko mína stelpu. Búin að fatta trixið. Hún verður örugglega ekki lengi að átta sig á að það er sniðugra að fara áfram en afturábak.
Ryksjúga? Neineinei. Hugsaðu ekki um hvað þú getur gert fyrir barnið, heldur hvað barnið getur gert fyrir þig! Líma rykmoppur á hnén! Schnillllld!
Annars býð ég Iðunni velkomna í hóp ferfætlinga. Nú opnast nýr og skemmtilegur heimur foreldrahrellinga...
Vei vid fognum thessu, morg skemmtileg verkefni fyrir foreldra framundan!
10 ár? Það er hér með fært til bókar.
Vá til hamingju Iðunn ofurkrútt með þennan merka áfanga :D
hún sefur fastar en þú heldur, smella af næst!
Sammála ks, hún er jú skyld Æsu og Diljá og þær vakna ekki við jarðskjálfta.
Tveir dagar og ekkert blogg. Hvað er að gerast? Amman er komin í fráhvarf.
Þú varst einni mínútu of snemma á ferðinni - bloggið komið núna! Það þýðir greinilega ekki að slaka á í fréttaflutningnum!!
Skrifa ummæli