
Þeir sem þekkja málgleði mína hafa eflaust séð að ekki var allt með felldu í gær þegar svona lítið var skrifað. Gærdagurinn var eitthvað svo einkennilega stressandi að við vorum öll eftir okkur.
Fyrst tókum við loksins ákvörðun um að fara til Vínar og tók þá við alls konar stress við að panta hlutina með stuttum fyrirvara - sérstaklega þar sem að við vissum að eingöngu voru eftir þrjú sæti í vélinni. Ekki hjálpaði til að VISA á Íslandi neitaði kortinu mínu mitt í öllu saman svo við þurftum að hringja heim og redda því...en þetta bjargaðist allt að lokum þrátt fyrir ansi mikið óþarfa stress.
Næst ákváðum við að bruna í Mothercare að kaupa regnhlífakerru og þar tók ekki betra við. Kerruna sem við vildum var hvorki hægt að kaupa né panta þrátt fyrir að 2 eintök væru til í búðinni, svo að lokum keyptum við bara ódýra Mothercare kerru sem við erum ágætlega ánægð með, en þá fannst hún ekki í tölvukerfinu...æ, þetta var bara óskaplega leiðinleg verslunarferð - það tók 1 1/2 klst að fá afgreiðslu og komast með kerruna út úr búðinni. Iðunn stóð sig samt eins og hetja og sjarmeraði alla og mátaði allar kerrur sem til greina komu með bros á vör, en við Helgi vorum alveg búin og andlaus eftir daginn.
Í ljósi þessa ákváðum við að gera bókstaflega ekki neitt í dag og fórum ekki úr náttfötunum fyrr en á hádegi. Skruppum reyndar í smá göngu að prófa kerruna og í kaffi hjá Donnu, en engin frekari stórafrek. Ferskt pasta var eldað á 5 mín í kvöldmatinn, og tími loksins tekinn í að gufusjóða og mauka annan skammt af uppáhalds steinseljurótinni hennar Iðunnar. Nú horfir Helgi á boltann og ég ætla að fara að taka upp prjónana mína.
Æ hvað er ljúft að gera bara ekki neitt!
4 ummæli:
Já, ég var farin að hafa áhyggjur af þessari málhelti. Fegin að þetta var tímabundið vandamál og gekk fljótt yfir. Amman þarf að fá sitt daglega blogg. Engin stórafrek unnin heldur á þessum bæ í dag, náttföt fram yfir hádegi og framhaldið eftir því. Samt ekki eins gaman að letipúkast einn á báti. Sjónvarpið auk þess í lamasessi. Ó mig auma!!
Vertu bara fegin - það er bókstaflega ekkert í sjónvarpinu!
Eg minnist verslunarferdar i Mothercare med Unu...
Úff já ekki góðar minningar þar - ég hefði átt að vita betur en að hætta mér aftur í Mothercare...
Skrifa ummæli