
Bloggarinn er andlaus í dag. Iðunn er samt hress eins og alltaf!
Keyptum miða til Vínar og förum þangað á laugardaginn - hlökkum ansi mikið til að komast (vonandi) í sumarlegra veður. Annars var ágætlega hlýtt fyrri hluta dags svo feðginin náðu að setja upp sólgleraugun og við fórum í stuttan sólargöngutúr. Héldum í útréttingar síðdegis og keyptum ódýra regnhlífakerru sem slengja má í flug.
Nóg í bili....
1 ummæli:
Andlaus bloggari er betri en enginn bloggari, mundu það. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta gangsterbride look á blessuðu barninu, en hún er þó altént í stíl við pabbann.
Ég var að koma af tónleikum í Laugardalnum með Sigurrós og Björku. Mjög gaman en svakalega kalt í restina þó sólin skini. Gekk heim eftir Sæbrautinni í hávaðaroki og sjógangi. Þurfti að fá mér heitt kakó OG Calvados, þegar ég kom heim til að ná upp hita.
Skrifa ummæli