
Ekki batnar það! Í dag er minni rigning en brjálað rok og varað við stormi um landið norðanvert - þ.e. akkúrat þar sem við erum. Hér í Barnard Castle hefur vindur í dag hæst farið í 65 mílur á klukkustund, sem er víst 30 metrar á sekúndu. Við létum þetta ekkert á okkur fá, bjuggumst vel og gengum til Donnu og þaðan í gönguferð um Barnard Castle og Starthford sem er hér handan við ánna Tees. Illa gekk stundum að koma vagninum áfram á móti vindi, og eins var ansi mikið um brotnar greinar og annað rusl á götum úti, en samt ansi hressandi gönguferð. En þetta getur ekki kallast gott sumarveður!
6 ummæli:
Enn sama blíðviðrið í henni Reykjavík. Engin leið að hafast við ini í húsi. Búin að vera úti í allan dag og er að hugsa um að drífa mig út aftur. Sumarið er núna!!!!
Best að segja fleiri sögur af íslensku blíðviðri. Það var svo gott veður að við hjónakornin erum búin að vera úti í garðvinnu í allan dag. Og það þarf töluvert til að við ráðumst til atlögu við arfa og illgresi.
En þið skuluð bara halda áfram að vera dugleg að berjast við rok og rigningu í Bretaveldi eins og sönnum Íslendingum sæmir.
Myndin af Iðunni að tala við ömmu í símann er óborganleg!
Já hún veit sko alveg hvernig á að fara að þessu - hugsa að símagenin hafi erfst frá móður frekar en föður....
Ha rok? Her i Bratislava er nu bara 35 stiga hiti og skinandi sol! Random fact um vedurfar...
Loksins kom fjolskyldumynd af ykkur oll saman!!!
Kveðja
Eszter
Skrifa ummæli