laugardagur, 21. júní 2008

Sumarsólstöður?


Halda mætti að myndin hér að ofan hefði verið tekin í kringum vetrarsólstöður, en ekki 21. júní! Hér er búin að vera hellidemba og ískalt í allan dag, og ekki sést til sólar þó sólstöður séu. Eftir að hafa hætt okkur út í smá göngutúr og verslað ost, kattamat og aðrar nauðsynjar var því ákveðið að halda sig inni það sem eftir var dagsins og reynt að gera gott úr hlutunum með arineldi og kertaljósum...... voða kósí en við verðum þó að játa að okkur þykir þetta heldur lélegt árferði svona í lok júní. Eflaust kvitta nú margir til að láta okkur vita hve yndislegt veðrið sé á Íslandi, því gott veður heima veit á vont veður hér og vice versa. Liggur við að við séum farin að óska þess að leiðindatíð fari að hrjá landann svo við fáum smá sumarveður (lengur en eina einustu kvöldstund) hér í Barnard Castle....

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er bara að drifa sig heim frekar fyrr en seinna.Yndislegur dagur í dag.Gekk heiman að frá mér sem leið lá suður Suðurgötu með viðkomu í kirkjugarðinum út á Ægissíðu, meðfram sjónum út í Nauthólsvík og þaðan yfir Öskjuhlíð upp í Hamrahlíð. Þar voru miklar framkvæmdir í gangi í garðinum svo við Dagur forðuðum okkur út á róló og lékum okkur þar í rúmlega tvo og hálfan tíma. Boðið í pizzu í kvöldmat og skutlað heim. Kvöldsól og sólarlag í turninum.