
Í dag brugðum við undir okkur betri fætinum og fórum með lestinni til York. Una fór á apasérfræðingafund og Helgi og Iðunn skoðuðu borgina. Tilkomumest þótti þeim gríðarstórt hestamálverk á listasafninu, eftir einhvern mann sem var víst heimsfrægur fyrir að mála reiðhesta......einkennilegt að hægt sé að verða heimsfrægur á að mála portrettmyndir af hrossum! Á safninu var víst heill salur fullur af hestaportrettum..... Ég sé bændur heima á Íslandi ekki alveg fyrir mér borgandi morðfjár fyrir mynd í fullri stærð af Skjóna eða Blesa til að hengja í stofuna. Við hittumst öll í hádeginu og fengum okkur einn bjór á sjaldséðri sólskinsstund með apasérfræðingunum sem var líka mjög gaman. Iðunn bætti í aðdáendaklúbbinn sinn á báðum lestarleiðunum. Á tímabili voru þrjár kerlingar að dáðst að henni í einu!! Fyndnust var ein sem sagði okkur að hún hefði ferðast alla leiðina frá Bornemouth með fuglahræðu í farteskinu til að færa bróður sínum - maður hittir ansi einkennilegt lið í lestarvögnum!
1 ummæli:
Mikið var! Amman var alveg orðin miður sín enda orðin háð því að fá fréttir af stelpunni á hverjum degi.
Skrifa ummæli